24júlí
Ég veit aldrei hvað ég á að láta færslurnar mínar heita þannig að ... verður bara að duga í þetta skiptið:).
Vá ég er ekki búin að blogga síðan í mai. ÉG náði að sjálfsögðu öllum prófunum, auðvitað, snillingur eins og ég hehe. En það er alveg búið að vera nóg að gera hjá mér í sumar, ég er aftur að vinna í blómavalinu í sumar, búið að vera nóg að gera þar en orðið frekar rólegt núna. Ég er búin að fara í viku sumarfrí og ég skellti mér með fjölskyldunni minn norður á Gjögur. Það var alveg meiriháttar. Enginn sími, engin tölva, ekkert sjónvarp, bara ró og friður með fjölskyldunni, Fórum 1x á sjóinn en Mína mín varð svo hrædd að við fórum ekki aftur, fórum í sund, göngur, löbbuðum fjöruna og bara yndislegheit. Síðan fór Marína Björk til pabba síns og ég er búin að vera alein, en ég fæ hana aftur á morgun og ég bara get ekki beðið. Núna fer ég aftur í frí og verð í fríi fram yfir verslunarmannahelgina.
Ég skellti mér út að borða með Heiðdísi og Lovísu á þriðjudaginn og það var alveg meiriháttar að hitta þær gellur. Spjölluðum mikið og höfðum gaman. Skvísan fékk sér síðan kaffi eftir matinn, eða það er að segja Sviss mokka sem er kaffi og kakó blandað saman, og það var bara nokkuð gott. Er að þjálfa mig í því að drekka kaffi hehe, jájá ég veit ég er rugluð, en mér finnst þetta samt ágætt sko
Síðan fór ég og Heiðdís í bíó á Mamma mía og var hún mjög skemmtileg, best að sjá James Bond syngja haha bara fyndið hahaha.
jæja þetta er ágætis júlíblogg, ég er eitthvað voðalega hugmyndasnauð ætla bara að drífa mig í háttinn. Hafið það gott og njótið þess sem er eftir að sumrinu tíminn er svoooo fljótur að líða!!
12febrúar
Hæhæ allir. Ég veit að ég hef verið mjög léleg í að blogga, mér finnst bara ekkert gaman að blogga þegar ég hef ekkert að segja. Hef örugglega misst marga lesendur frá mér, en ég veit að mínu tryggustu vinir hafa samt alltaf trú á mér og kíkja hér inn af og til, þið vitið hverjir þið eruð, takk elskurnar mínar ;)
Hvað er annars málið með þennan vetur, það er sko eins gott að það verði meiri háttar sumar í sumar.
Sko ég alveg elska að hafa snjó en það er bara búið að vera aðeins of mikið, maður hefur varla getað gengið í honum hvað þá þessi litlu grey leikið sér, þau bara hverfa í hann eða festast í honum. Og þessi kuldi sem hefur verið líka ömurlegt og rigning og bara þetta leiðinda veður, ég hlakka bara til þegar fer að vora og hlýna. Annars erum við Marína alveg að fara að fá vikufrí frá þessum vetri hér á landi. Já við mæðgurnar erum að fara til Kanarí og okkur hlakkar báðum mjög mikið til að fara, það verður gott að komast í hlýjuna, sérstaklega fyrir litla lasarhausinn minn. Já Mína mín er búin að vera lasin í rúmlega viku. Fyrst var hún með svaka hósta og ég hélt henni heima í tvo daga, þó hún hafi ekki verið með hita. Svo þegar ég sótti hana í leikskólann á sprengidag(þriðjudag) þá var hún komin með hita. Svo hóstaði hún og hóstaði. Endaði með því að eg fór með hana til læknis, hann heyrði ekkert ofan í henni, en vildi taka mynd af kinnholunum, við báðum hann að taka mynd af lungunum líka, sem betur fer, því hún var með svona leynda lungnabólgu í vinstra lunganu. Síðan hélt ég að hún væri að hressast en þá rauk upp hiti aftur á sunnudaginn og er hún enn með hita litla greyið mitt og er bara sárlasin. En vonandi rífur hún þetta úr sér því eins og ég sagði þá erum við að fara til Kanarí til ömmu Soffíu í næstu viku.
Það er nóg að gera í skólanum, eins og alltaf, hef reyndar lítið getað mætt síðustu daga en ég reyni mitt besta. Við erum svo að fara að kenna 3 til 14 mars, 2.bekk og það er sko svaka spennandi.
En jæja læt þetta nægja í bili... hafið það bara gott í kuldanum, hjúfrið ykkur undir hlýja sængina, jafnvel upp að ástinni ykkar og látið ykkur líða vel. Bless í bili 